Námsfyrirkomulag
Hópur 7 ára og eldri
Aðalmarkmiðin okkar eru þau að örva og rækta íslenskt mál. Það eru til margar leiðir til þess og notum við mikið leik í okkar starfi. Sem dæmi má nefna að skólaárið 2010-2011 er annað árið í röð sem sett er upp leikrit sem unnið er að alla önnina. Það fer mikill tími í hugmyndavinnu hjá nemendum sem og æfingar. Að öðru leyti erum við með sama skipulag á hverjum skóladegi og reynum að fara eftir því:
- Við byrjum skóladaginn ávallt á spjalli um atburði sl. daga. Með því fá börnin tækifæri til að tjá sig og segja frá atburðum sem þau hafa kannski aðeins sagt frá í skólanum og þá á hollensku í stað íslensku. Tilgangurinn með spjallinu okkar er málörvun og öllum er frjálst að tjá sig.
- Við lesum saman bók, bæði kennari og þeir nemendur sem vilja.Með bókinni fær hver nemandi verkefnahefti úr sögunni sem byggist að miklu leyti á lesskilningi. Við munum vinna nokkrar bls. í hverju tíma.
- Við förum í 1-2 leiki og þar er beint sjónum að málrækt og málörvun.
- Þeir nemendur sem vilja, geta lesið fyrir kennarann í einrúmi svo lengi sem aðstoðarmenn (foreldrar) eru til staðar.
- Nemendur fá allir verkefnahefti úr nýjum kennslubókum sem heita Ritrún 1 og Ritrún 3. Heftið er tæpar 40 bls. og er ætlað að duga amk. út önnina. Þetta hefti er gulrótin okkar því þarna er að finna fjöldann allan af skemmtilegum verkefnum fyrir nemendur þar sem fengist er við atriði líkt og ritun, málfræði og stafsetningu. Verkefnin eru sett fram á mjög svo skilmerkilegan og auðveldan hátt.

