Facebook

Íslenskuskólinn í Hollandi

Icon

Skólastarfið

Kennsla fer fram annan hvern sunnudag frá kl. 12:00 – 15:00.

Á hverjum vetri eru um það bil 15 kennsludagar.

Haustönnin byrjar í lok september og lýkur í desember. Vorönnin byrjar í lok janúar og lýkur í maí.

Helstu viðburðir skólastarfsins:

  • Tónlistardagur: Það er orðin venja að hafa tónlistardag í byrjun annar og bjóða íslensku tónlistarfólki sem búsett er í Hollandi til að vera með nemendum eina kennslustund.
  • Jólaball: Síðari hluti annarinnar fer að hluta í að undirbúa jólaballið sem haldið um miðjan desember og fer fram í samvinnu við Vinafélag Íslands og Niðurlanda (VIN http://www.verenigingijslandnederland.nl/). Nemendur og kennarar skólans sjá um skemmtiatriðin og foreldrar og aðrir viðstaddir um veitingarnar.
  • Íslenski hesturinn: Einnig er orðin hefð fyrir því að heimsækja búgarð í Hollandi sem er með íslenska hesta og fá nemendur þar að fara á bak.
  • Grillveisla sem allir foreldrar taka þátt í og markar lok skólaársins.

Heimavinna

Stefnt er að því að hafa sem minnsta heimavinnu hjá börnunum. Foreldrar eru hvattir til að lesa íslenskar sögubækur fyrir börnin í yngri hópnum. Bókin “Í stafaleik” er kjörin til heimavinnu fyrir yngri hópana. Auk þess er mikils virði að foreldrar kenni börnunum íslensk barnalög til að styðja við íslenskuna hjá þeim.

Mynd úr starfi skólans

skolastarfidhelgagroup

Helga með yngri hópinn