Facebook

Íslenskuskólinn í Hollandi

Icon

Íslenskuskólinn í Hollandi auglýsir eftir kennurum

Auglýsing eftir kennurum fyrir skólaárið 2011-2012

Íslenskuskólinn í Hollandi er fyrir börn á aldrinum fjögurra til tólf ára sem tala og skilja íslenskt mál. Skólinn var stofnaður haustið 1994 með það að markmiði að gefa íslenskum nemendum kost á að viðhalda og bæta þekkingu sína á íslenskri tungu, menningu og þjóðhátttum

Íslenskuskólinn sækist eftir áhugasömum leiðbeinundum eða kennurum fyrir næsta skólaár. Um er að ræða tvær kennarastöður; fyrir yngri hóp (4-6 ára) og eldri hóp (7 ára og eldri). Fjöldi nemenda fer eftir aðstæðum hverju sinni, en gera má ráð fyrir 10 nemendum í hvorum hóp. Fyrir yngri hópinn erum við að leita að kennara sem á leikrænan hátt getur örvað og ræktað íslenska tungu og menningu. Fyrir eldri hópinn erum við að leita að kennara sem getur frætt nemendur um íslenska sögu og þjóð og ræktað talað og ritað mál. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslustörfum og hafi gaman af að vinna með börnum.

Skólaárið telur 15 kennsludaga frá september til maí ár hvert. Kennslan fer fram annan hvern sunnudag frá kl. 12:00 – 15:00 í Utrecht. Laun eru greidd fyrir fjölda kennslustunda, undirbúningsvinnu og ferðakostnað. Nánari upplýsingar um skólann má sjá á heimasíðu skólans www.islenskuskolinn.nl

Umsóknum skal skilað fyrir 17. júní til stjórnar Íslenskuskólans í Hollandi á netfangið islenskuskolinn@yahoo.com.

Mikilvægt er að taka fram menntun, starfsreynslu, og áhuga fyrir stöðunni.

f.h. Íslenskuskólans í Hollandi
Ágústa Jónsdóttir
Ásdís Valdimarsdóttir
Hanna Lára Pálsdóttir (formaður).

Þjóðhátíðarfagnaður VIN 2011

Þann 18. júní stendur Vinafélag Íslands og Niðurlanda (VIN) fyrir þjóðhátíðarfögnuði í Rotterdam (sjá heimasíðu VIN). Nánari upplýsingar eru hér að neðan.


Staður: Beatrixpark í Schiedam, við Rotterdam

Dagskráin hefst klukkan 14.00 og stendur svo lengi sem veður og ánægja leyfir.

Veitingar eru í boði Eimskip og Samskip.

Freyjurnar Vigdís Þórarinnsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og Sigríður Björg Sigurðardóttir sjá um grill með pylsum með öllu, drykkjarvörur og sælgæti. Annað meðlæti á borðið er lika mjög svo velkomið!

Dagskráin er i lausum drögum þessi:

  • Trompetleikur Hannah O´Connor
  • Formaður VIN býður gesti velkomna
  • Ávarp-ljóðalestur fjallkonu eða fjallamanns
  • Söngur og fjöldasöngur með aðstoð Stefáns Sigurjónssonar
  • Veitingar
  • Hópleikir undir stjórn Kristinar Björgu Viggósdóttur og Bjargar Eysteinsdóttur

Söngskrá gerir Kristin Björg Viggósdóttir. Takið svo gjarnan með ykkur kassagítar, garðstóla og eða teppi, bolta og annað dót fyrir litla fólkið á grasvöllinn.

Einnig væri nafnspjald á alla fjölskylduna lika vel þegið til að stuðla að innbyrðis tengslum. Það er búið að panta sól og hita til að kórona þenna dag sem við viljum njóta saman með ykkur öllum! Fjölmennum til Rotterdam til að halda upp á 17 júni! Sólhattar og föt í fánalitunum?

Vinsamlegast tilkynnið þáttöku til nl_is@yahoo.com til að hægt sé að sjá um rétt innkaup!

Skólaslit

Skólastarfi vetursins 2010-2011 er nú lokið. Við enduðum árið á grillveislu í húsnæði skólans þann 15. maí síðastliðinn. Nenemdunum var veitt viðurkenningarskjal fyrir liðinn vetur.

Mynd úr starfi skólans

skolastarfidhelgagroup

Helga með yngri hópinn