Facebook

Íslenskuskólinn í Hollandi

Icon

Vetrardagskráin

Eins og áður verður kennt annan hvern sunnudag í vetur. Ein undantekning verður þó á, því engin skóli verður sunnudaginn 2. október, en bent er á að foreldrafundur verður þann 9. október.

Haustönn 2011

  • 18. september
  • 9. októberforeldrafundur
  • 16. október
  • 30. október
  • 13. nóvember
  • 27. nóvember
  • 11. desember – jólaball

Vorönn 2012

  • 22. janúar
  • 5. febrúar – foreldrafundur
  • 19. febrúar
  • 4. mars
  • 18. mars
  • 1. apríl
  • 15. apríl – (hestaferð*)
  • 29. apríl
  • 13. maí – grillveisla

* Með fyrirvara.

Hauststarfið fer af stað..

Það er leikur að læra…..

Íslenskuskólinn byrjar aftur sunnudaginn 18. september næstkomandi. Vinsamlegast skráið nemendur í gegnum netfang skólans islenskuskolinn@yahoo.com

Sjáumst!

Íslenskuskólinn í Hollandi auglýsir eftir kennurum

Auglýsing eftir kennurum fyrir skólaárið 2011-2012

Íslenskuskólinn í Hollandi er fyrir börn á aldrinum fjögurra til tólf ára sem tala og skilja íslenskt mál. Skólinn var stofnaður haustið 1994 með það að markmiði að gefa íslenskum nemendum kost á að viðhalda og bæta þekkingu sína á íslenskri tungu, menningu og þjóðhátttum

Íslenskuskólinn sækist eftir áhugasömum leiðbeinundum eða kennurum fyrir næsta skólaár. Um er að ræða tvær kennarastöður; fyrir yngri hóp (4-6 ára) og eldri hóp (7 ára og eldri). Fjöldi nemenda fer eftir aðstæðum hverju sinni, en gera má ráð fyrir 10 nemendum í hvorum hóp. Fyrir yngri hópinn erum við að leita að kennara sem á leikrænan hátt getur örvað og ræktað íslenska tungu og menningu. Fyrir eldri hópinn erum við að leita að kennara sem getur frætt nemendur um íslenska sögu og þjóð og ræktað talað og ritað mál. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslustörfum og hafi gaman af að vinna með börnum.

Skólaárið telur 15 kennsludaga frá september til maí ár hvert. Kennslan fer fram annan hvern sunnudag frá kl. 12:00 – 15:00 í Utrecht. Laun eru greidd fyrir fjölda kennslustunda, undirbúningsvinnu og ferðakostnað. Nánari upplýsingar um skólann má sjá á heimasíðu skólans www.islenskuskolinn.nl

Umsóknum skal skilað fyrir 17. júní til stjórnar Íslenskuskólans í Hollandi á netfangið islenskuskolinn@yahoo.com.

Mikilvægt er að taka fram menntun, starfsreynslu, og áhuga fyrir stöðunni.

f.h. Íslenskuskólans í Hollandi
Ágústa Jónsdóttir
Ásdís Valdimarsdóttir
Hanna Lára Pálsdóttir (formaður).

Mynd úr starfi skólans

skolastarfidhelgagroup

Helga með yngri hópinn